30 ára afmælistónleikar GusGus

Eftir þrjátíu ára stöðuga framrás er litríkur skrápur  kameljónsins harður, en hjartað opið og meyrt. Stöðnun  þýðir drukknun og dauði fyrir hákarlinn; rafháfinn sem laðar bráð sína með ómótstæðilegum rafbylgjum.

Í 30 ár hafa nálar jarðskjálftamælanna dansað sleitulaust til heiðurs kvikuflæðinu GusGus, og öfugt við Orfeus lítur fyrirbrigðið aldrei um öxl. Óvissuferðin leyndardómsfulla heldur stjórnlaus áfram, hömlulaus og frek á frelsi. Ísköld, sjóðheit.

Eftir 12 breiðskífur og 12 meðlimi hefur gimsteinninn kristallast niður í frumefnin Daníel Ágúst, Bigga Veiru og Margréti Rán, sem saman svífa hærra og hærra um snæviþakta tinda raftónlistarinnar, kljúfandi öreindir alheimsins. 

Í tilefni 30 ára taumlauss oddaflugs strengir GusGus, ásamt gestum, upp sín dýrustu djásn á himnafestinguna og býður dansþyrstum aðdáendum upp á sýningu ársins 2025.

Meðlimir í GusGus samfélaginu fá fyrstir fréttir af þróun mála. Skráðu þig. Sjóðheitir og ískaldir velkomnir.

 
 

Gusgus í gegnum tíðina